top of page

Námsframboð

Við leggjum mikið upp úr einstaklingsmiðuðu námi í fámennum hópum svo allir fái að láta ljós sitt skína. Sterk áhersla í öllu okkar námi er á að búa til traust, uppbyggjandi og gleðilegt umhverfi fyrir nemendur okkar. Smelltu til að lesa meira.

(LEIKLIST, SÖNGUR, DANS)
(SENUR/SHOWREEL)

STUNDATAFLA

HAUSTÖNN 2024

stundatafla dynamik H2024.png
LEIKLIST

Leiklist 

LEIKLIST, SÖNGUR, DANS

12 vikna önn þar sem nemendur vinna með leiktækni á skapandi og skemmtilegan hátt!

 

Kennd verður leiklist, hópsöngur og dans.

Nemendur fá einnig tækifæri til að hitta gestakennara úr bransanum. 

  • YNGRI LEIKLISTAR HÓPAR (7-9 ára og 10-12 ára) kynnast leiklist, söng og dans í gegnum leiki, sjálfsstyrkingu og sköpun. Unnið er markvisst með hugrekki, ímyndunarafl og samvinnu.

  • UNGLINGAR læra leiklist, söng og dans og vinna með hugtök og aðferðir þekktra leiklistarfrumkvöðla ásamt því að vinna með senur og texta úr þekktum og óþekktum leikritum. Unnið verður með líkamlegan spuna, raddþjálfun og stærð leikarans á sviði ásamt því að nemendur læra að virkja ímyndunaraflið í sköpun og spuna.

  • LISTHÓPUR UNGLINGAR Þessir hópur er fyrir metnaðarfulla nemendur með þekkingu í leiklist sem vilja skora á sig og læra dýpri leiktækni. Hópurinn vinnur með nýtt þema á hverri önn og tekur fyrir leiktækni, skapandi skrif, senuvinnu og persónusköpun í gegnum samsköpun, vinnu með þekkt og óþekkt leikrit eða uppsetningu heils leikverks. 
    Krafa er gerð um mætingu, elju, textakunnáttu og undirbúning. Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópinn.

  • LISTHÓPUR YNGRI og LISTHÓPUR MIÐSTIG eru framhaldshópar fyrir nemendur í 5.-7. bekk og 8.-10. bekk sem vilja skora á sig, læra dýpri leiktækni og setja á svið flóknari leikrit. Krafa er gerð um mætingu, elju, textakunnáttu og undirbúning. 
    Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópana

  • ​Áheyrnarprufur fyrir listhópana verða haldnar um miðjan ágúst. Athugið að taka þarf áheyrnapróf milli aldursflokka í Listhópi óháð því hvort nemandi hafi verið í Listhópi áður. 

Hver önn endar með glæsilegri sýningu í leikhúsi!

LEIKLIST HÓPAR

2.-4. Bekkur (7-9 ára)

Mánudagar kl. 15:30-17:00 BIÐLISTI

Miðvikudagar kl. 15:30-17:00 BIÐLISTI

Fimmtudagar kl. 15:00-16:30 BIÐLISTI

Sunnudagar kl. 12:00-13:30 BIÐLISTI

5.-7. Bekkur (10-12 ára)

Mánudagar kl. 17:00-18:30 BIÐLISTI

​Mánudagur kl. 18:30-20:00 BIÐLISTI

Miðvikudagar kl. 17:00-18:30 BIÐLISTI

Fimmtudagar kl. 17:00-18:30 BIÐLISTI

Föstudagar kl. 18:00-19:30 BIÐLISTI

LISTHÓPUR - YNGRI 

Föstudagar kl. 16:00-18:00 FULLUR

LISTHÓPUR - MIÐSTIG

Fimmtudagar kl. 18:00-20:00 FULLUR

UNGLINGAR

Þriðjudagar kl. 16:00-18:00 BIÐLISTI

Þriðjudagar kl. 18:00-20:00 BIÐLISTI

Miðvikudagar kl. 20:00-22:00 BIÐLISTI

LISTHÓPUR - UNGLINGAR (2x í viku)

Mánudagar & Fimmtudagar kl. 20:00-22:00 

PRUFUR 14.-15. ÁGÚST

KVIKMYNDALEIKUR

Kvikmyndaleikur

SENUR/SHOWREEL

12 vikna önn þar sem nemendur vinna með leiktækni á skapandi og skemmtilegan hátt! 

 

Kennd er leiktækni og fagleg vinnubrögð á kvikmyndasetti. 

Nemendur fá einnig tækifæri til að hitta gestakennara úr bransanum. 

  • KVIKMYNDALEIKUR UNGLINGAR
    Nemendur kynnast kvikmyndaleik á afslappaðan og skemmtilegan hátt gegnum leiki, spuna, hreyfingu, senu- og textavinnu. Unnið er með senur og texta úr þekktum og óþekktum kvikmyndum, leikritum og sjónvarpsþáttum. Kennd eru fagleg vinnubrögð á kvikmyndasetti og í kringum myndavél. Á seinni hluta annar er tekin upp sena með atvinnu kvikmyndatökumanni sem þau fá afhend í lok annar ásamt headshoti sem þau geta notað til að koma sér á framfæri.

 

  • LISTHÓPUR - KVIKMYNDALEIKUR.  
    Framhaldshópur fyrir metnaðarfulla Unglinga. Í Listhópi-Kvikmyndaleik fá nemendur tækifæri til að skora enn meira á sig með krefjandi æfingum og djúpri persónusköpun. Nokkrir tökudagar með atvinnu kvikmyndatökumanni verða á önninni. Hópurinn fær einnig tækifæri til að taka upp self-tape og hitta casting leikstjóra frá Doorway Casting. 
    Í lok annar fá nemendur afhend showreel sem þau geta nýtt sér á þann hátt sem þau vilja. Nemendur fá einnig headshot sem þau geta notað til að koma sér á framfæri.
    Krafa er lögð á metnað og textakunnáttu og því þurfa nemendur að undirbúa sig vel heima og kunna að vinna sjálfstætt. 

  • Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópinn um miðjan ágúst

KVIKMYNDALEIK 
HÓPAR

KVIKMYNDALEIKUR UNGLINGAR

Sunnudagar kl 14:00-16:00 BIÐLISTI

Sunnudagar kl 16:00-18:00 BIÐLISTI

KVIKMYNDALEIKUR LISTHÓPUR

FRAMHALDSSSKÓLI

Þriðjudagar kl 20:00-22:00 

Prufur um 14.-15. ágúst

SENUVINNA

Önnin hefst 1. SEPTEMBER

bottom of page